Er búinn að skrifa 3 færslur og alltaf nær þessi síða að fokka því upp!
Látum okku sjá hvað er búið að gerast síðustu daga?
-Gay pride kom og fór. Frekar mikil vonbrigði verð ég að segja. Gangan döll og óáhugaverð. Hvar er metnaðurinn? Við sjáum sömu gömlu kellingarnar ár eftir ár í sömu ljótu dressunum að mæma sömu gömlu lögin. Koma svo stelpur! Sýna smá frumkvæðni. Gay it up a notch! Geyspuðum á meðan gangan silaðist áfram fórum svo allir heim og leggja okkur! Yeeha?
-fékk frekar mixed messages um daginn. Á sömu 24 tímunum var ég kallaður yfirborðskennd tík af strák svo stuttu seinna sagði annar við mig að sennilega væri ég of góður strákur. Hvað get ég sagt? Hmmm.
-Malla kom til danske um daginn í stutt stop. Gaman að fá skvísuna í heimsókn. Gerist ekki nógu oft að fólk leggji leið sína til danaveldis. María og Eva koma samt á fimmtudaginn til að taka þátt í gleðihöldunum. Tístir í mér af tilhlökkun! Heyrði svo í Kollu skvísu í dag og hún er að koma í oktober. Ekki lítið gaman!!
-Á laugardaginn verð ég svo með fínt dömukaffiboð. Verð að fara skella í uppskrift bráðum. og líka í eina Betty! Svo er auddað gleði í boðinu um kvöldið! Elska að vera afmælisbarn. Þá má maður alveg vera athyglissjúkur!
Kiss kiss og útaf..